ÖLVUNAR AKSTUR OG HVAÐ HANN GERIR

Síðasta dag fyrir jól flýtti ég mér í stórmarkaðinn til að kaupa
gjafirnar sem ég komst ekki yfir að kaupa fyrr. Þegar ég sá allt
fólkið þar, byrjaði ég að kvarta í hljóði "Þetta á eftir að taka heila
eilífð og ég á enn eftir að fara á svo marga staði". Jólin eru alltaf
að verða meira og meira pirrandi með hverju árinu. Ég vildi að ég gæti
bara lagst niður og farið að sofa og vaknað svo eftir jólin.
Allavegana, ég kom mér í leikfangadeildina og þar fór ég að skoða
verðin, hugsandi hvort að börn leiki sér eitthvað með svona dýr
leikföng. Eftir smá tíma af leikfangaskoði þá tók ég eftir litlum
strák um 5 ára, sem hélt ádúkku upp við brjóstið sitt. Hann strauk
hárið á dúkkunni og virtist svo sorgmæddur. Svo snéri litli strákurinn
sér að eldri konu sem var við hliðina á honum "amma, ertu viss um að
ég hafi ekki nógu mikla peninga?" Gamla konan svaraði "þú veist að þú
átt ekki nóg til að kaupa dúkkuna elskan mín" Svo bað hún hann um að
bíða í 5 mínútur eftir sér á meðan hún skoðaði sig um. Hún fór
fljótlega. Litli strákurinn hélt ennþá á dúkkunni í hendinni. Ég
labbaði til hans og spurði hann hverjum hann ætlaði að gefa dúkkuna.
"Þetta er dúkkan sem systir mín elskaði mest og langaði svo mikið í
fyrir jólin. Hún var svo viss um að jólasveinninn myndi gefa sér hana.
Ég sagði honum að kannski eigi jólasveinninn eftir að koma með dúkkuna
til hennar, og að hann þyrfti ekki að hafa áhyggjur. En hann sagði við
mig sorgmæddur "Nei jólasveinninn getur ekki gefið henni dúkkuna þar
sem hún en núna. Ég verð að gefa mömmu dúkkuna svo að hún geti gefið
henni hana þegar hún fer þangað". Augun hans voru svo sorgmædd meðan
hann sagði þetta. "Systir mín er farin til þess að vera með Guð. Pabbi
segir að mamma sé líka að fara til Guðs mjög fljótlega, og ég hélt að
hún gæti farið með dúkkuna fyrir mig og gefið systur minni hana".
Hjartað mitt stoppaði næstum því. Litli strákurinn leit upp til mín og
sagði "Ég sagði pabba að segja mömmu að fara ekki alveg strax.
Ég bað hann um að bíða þangað til að ég kæmi heim úr búðinni" Svo
sýndi hann mér fallega mynd af honum þar sem hann var hlægjandi. "Ég
vil líka að mamma taki þessa mynd með sér svo að hún gleymi mér
aldrei"
"Ég elska mömmu mína og ég vildi óska að hún þyrfti ekki að fara, en
pabbi segir að hún verði að fara til að vera hjá litlu systur minni".
Svo leit hann aftur á dúkkuna með sorgmæddum augum, mjög hljóðlátur.
Ég teygði mig hljóðlega í veskið mitt og tók smá pening upp og sagði
við strákinn "en ef við athugum aftur í vasann til að tékka hvort að þú
eigir nógan pening?" Allt í lagi sagði strákurinn "ég vona að ég eigi
nóg"
Ég bætti smá af mínum peningum við án þess að hann tæki eftir því og
við byrjuðum að telja. Það var nógur peningur fyrir dúkkunni, og meira
að segja smá afgangur.
Litli strákurinn sagði "Takk Guð fyrir að gefa mér nógan pening. Svo
leit hann á mig og sagði " Í gær áður en ég fór að sofa þá bað ég Guð
um að vera viss um að ég hafi nógan pening til þess að geta keypt
dúkkuna handa systur minni. Hann heyrði til mín"

"Mig langaði líka að eiga nógan pening til að kaupa hvíta rós handa
mömmu, en ég þorði ekki að biðja Guð um of mikið, en hann gaf mér nóg
til að kaupa rósina líka". Sko mamma elskar hvíta rós".
Nokkrum mínútum seinna kom gamla konan og sótti strákinn. Ég kláraði
að versla með allt öðru hugarfari ég gat ekki hætt að hugsa um litla
strákinn.

Svo mundi ég eftir frétt í blaðinu fyrir 2 dögum síðan "maður keyrði
drukkinn og klessti á bíl þar sem ung kona og lítil stelpa voru í.
Litla stelpan dó samstundis en mamman var í dái" Fjölskyldan varð að
ákveða hvort það ætti að setja hana í öndunarvél eða ekki, af því að
unga konan myndi ekki vakna úr dáinu.
Var þetta fjölskylda litla stráksins?

Tveim dögum eftir að ég hitti litla strákinn, las ég í blaðinu að unga
konan hafi dáið. Ég gat ekki hamið mig og fór út í blómabúð og keypti
búnt af hvítum rósum og fór upp í líkhús þar sem fólk gat séð konuna
og óskað sér í seinasta skipti áður en hún væri jörðuð.Hún var þarna í
kjól, haldandi á fallegri hvítri rós með myndinni af litla stráknum og
dúkkuna á brjóstinu.
Ég fór grátandi og fannst líf mitt hafa breyst til eilífðar. Ástin sem
þessi litli strákur hafði til mömmu sinnar og systur, er enn þann dag í
dag, erfitt að ímynda sér. Og í einni svipan tekur drukkinn maður
þetta allt frá honum.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

ójá, þessi saga hrærir svo sannarlega upp í manni... maður fær bara verk í hjartað við að lesa þetta!

en annars, til hamingju með komandi disk... hlakka til að heyra hann! :)

kveðja Hekla Hrönn

Hekla (IP-tala skráð) 17.12.2007 kl. 12:36

2 identicon

það má svo sannarlega hugsa aðeins um hvað maður hefur mikið að þakka fyrir.  takk fyrir þessa áminningu Valdís mín

Lára (IP-tala skráð) 18.12.2007 kl. 15:22

3 Smámynd: Júdas

Þetta er svo sorgleg saga.....................

Júdas, 28.12.2007 kl. 22:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband