einn góður fyrir helgina

Jóhann var að útskrifast úr laganámi frá HR. Hann átti sér stóra drauma um glæsta framtíð. Jóhann fór að sækja um vinnu í stóru fyrirtæki í borginni.Starsmannastjórinn sem tók viðtalið var hrifin af þessum efnilega manni og var mjög heitur fyrir því að ráða hann í vinnu. Áður en viðtalið var búið spurði starfsmannastjórinn hvaða launahugmyndir Jóhann hefði. "Ég var að spá í 1.500.000 á mánuði svona til að byrja með", svaraði Jóhann. Starfsmannastjórinn horfði á hann í smá stund og sagði svo: "Hvernig líst þér á  2.500.000 á mánuði, 2 mánaða sumarleyfi á fullu kaupi, 21% mótframlag í séreignarsjóð, nýjan LEXUS til ótakmarkaðra afnota og húshjálp til að þrífa heimilið" Jóhann varð orðlaus. Þetta var meira en hann hafði þorað að vona. Að lokum sagði hann í mikilli sigurvímu: "Þú hlýtur að vera að grínast!"Starfsmannastjórinn svaraði að bragði: "Já - en þú byrjaðir á gríninu ……."

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Já,það eru margs konar ský í kollum okkar!

Þórarinn Þ Gíslason (IP-tala skráð) 12.1.2008 kl. 00:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband